Klám ógnar unglingum og almenningi

Ríkisstjóri Utah, Gary Herbert, hefur skrifað undir ályktun þess efnis að klám sé ógn við heilsu almennings.
Í ályktuninni er klám sagt faraldur sem normaliseri ofbeldi gegn konum og börnum og hafi þær afleiðingar að menn sé síður viljugir til að ganga í hjónaband.
Ríkisútvarpið sagði fyrst íslenskra fjölmiðla frá þessu en félagsfræðingar og fleiri hafa mjög varað við áhrifum klámvæðingarinnar á íslenskt samfélag.
Kannanir sýna að stærstur hluti drengja skoðar klám reglulega.
Ríkisstjóri Utah segir að stöðva verði útbreiðslu kláms og sporna við klámfíkn. Klám ýti undir hlutgervingu unglinga, vændi og framhjáhalds auk annarra vandamála.
Ekki er að undra að fréttir sem þessar veki athygli hér á landi því nokkurra ára gömul könnun sýnir að börn og unglingar á Norðurlöndunum eru stórfelldir klámneytendur og íslensk börn byrja langfyrst að skoða klám.
Samnorræn könnun náði til ungmenna á aldrinum 12-20 ára og skoðar þriðjungur þeirra klám nánast á hverjum einasta degi. Könnunin var gerð á vegum samtakanna NIKK sem er \"Nordisk institut for kvinde- og könsforskning.\" Drengir skoða klám meira en stúlkur. Þeir eru oftast einir og helsti tilgangur þeirra að fróa sér. Stúlkur skoða aðallega klám vegna þess að þær eru forvitnar, eða bara sér til gamans.
Þá hafa birtingarmyndir kláms orðið æ grófari. Endaþarmsmök eru sem dæmi flokkuð sem hefðbundið kynlíf og sendir villandi og skaðleg skilaboð að mati sérfræðinga sem rýnt hafa í þróun á netinu. Framsetningin sé sú að stúlkur séu í hlutverki óvirkra þolenda og beri að sinna þörfum drengja eða karla.