Kjöt og vopn algengust í smygli

Það er enginn einn hópur frekar en annar, sem reynir að smygla ýmsum varningi í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar, að því er fram kemur í svari Kára Gunnlaugssonar, yfirtollvörðs í Leifstöð við fyrirspurn upplýsingaveitunnar spyr.is um það hverjir reyndu helst að smygla einhverju til landsins sem ekki teldist til fíkniefna.


Kári sagði þennan varning mjög fjölbreyttan en þar mætti helst nefna hrátt kjöt og vopn af ýmsu í Það væru þá vopn eins og kasthnífar og sveðjur. Til viðbótar við þetta væri síðan verið að reyna að smygla umfram magni af áfengi og tóbaki, munntóbaki eða ólöglegum lyfjum.


Þeir aðilar sem reyna að smygla varningi til landsins eru að sögn Kára á öllum aldri og á það jafnt við um Íslendinga sem erlenda ríkisborgara.