Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir í viðtali við RÚV að hún telji að kjósendur bæði Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hafi orðið fyrir vonbrigðum með ríkisstjórnina.
Þetta skýrir að nokkru segir Stefanía hversu lítils stuðnings stjórnin nýtur samkvæmt könnunum.
Eins þingmanns meirihluti merkir að það er ekki mikil stemming innan þingflokka stjórnarinnar og að ákveðin þreyta greindist þegar í uppphafi en illa gekk að koma saman starfhæfum merihluta rifjar Stefanía upp.
Nú sýna kannanir að þessi tveir samstarfsflokkar Sjálfstæðisflokksins hafa misst um eða yfir helming síns fylgis frá því í kosningunum árið 2016 en kjarnafylgi Sjálfstæðisflokksins er í kringum tuttugu og fimm prósent eins og það hefur verið undanfarin ár.
Stefanía minnir á að Björt framtíð hafi ekki verið spennt fyrir hægri-miðju samstarfi.
Þá séu kjósendur Viðreisnar áhugasamir um endurbætur í meðal annars sjávarútvegi og breytingar í þeirri atvinnugrein og svo hafi Evrópumálin misst vægi sitt og það valdi kjósendum Viðreisnar vonbrigðum.
Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn er en þá stöðugur og Stefanía rekur það til þess hversu traustur kjósendahópur hans er.
Ekki var í byrjun lagt upp með stór áform um raunverulegar breytingar og endurbætur eins og stjórnarsáttmálinn er til vitnis um.
Kjósendur Viðreisnar og Bjartrar framtíðar sáu fyrir sér breytingar en þeir hafa orðið fyrir vonbrigðum með þessa ríkisstjórn.
rtá
Nánar www.ruv.is
.