Kjósa um verkfall í dag

Í dag hefst almenn kosning hjá félagsmönnum Eflingar um vinnustöðvun starfsfólks í ræstingum á veitinga- og gistihúsum. Atkvæðagreiðslunni, sem er leynileg og rafræn, lýkur á fimmtudagskvöld og verði hún samþykkt mun vinnustöðvun hefjast um morguninn 8. mars, á Alþjóðadegi kvenna, og standa fram á kvöld. RÚV.is og Viðskiptablaðið greina frá.

Á kjörskrá eru tæplega 8.000 félagsmenn og þarf einfaldan meirihluta þeirra sem kjósa til þess að samþykkja verkfall. Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir að það séu á milli 500-1000 starfsmenn sem verkfallið myndi ná til.

Verkfallsboðunin tekur til allra þrifa, hreingerninga og frágangs herbergja og annarrar gistiaðstöðu, þ.m.t. á göngum, salernum og í sameiginlegu rými, á öllum hótelum og gistihúsum á félagssvæði Eflingar. Félagssvæði Eflingar eru Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarsýsla að Botnsá, Grímsnes og Grafningshreppur, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfusi, auk Hafnarfjarðar og Garðabæjar.

Í samtali við RÚV segist Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, búast við því að atkvæðagreiðsla um fyrstu verkfallsaðgerðir félagsins hefjist í næstu viku. Hann segir að þær aðgerðir muni beinast að stærstu fyrirtækjunum í ferðaþjónustu.