Kjöraðstæður til lækkunar vaxta

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins kemst vel að orði þegar hann líkir áhrifum afnáms haftanna á atvinnuvegina við að leysa fugl úr búri.

Öll fjármagnshöft verða afnumin með nýjum reglum um gjaldeyrismál. Þetta er afar jákvætt. Afnám hafta skapar kjöraðstæður fyrir lækkun vaxta.  Þetta merkir jafnfram að engar hindranir eru lengur í vegi innlendra fjárfesta að færa sig í ríkum mæli úr innlendum eignum í eignir í erlendri mynt.

Verði vaxtastigið lægra geta íslensk stjórnvöld þessu næst stigið skrefið til fulls með afnámi innflæðishafta á næstunni. Vaxtalækkun ætti að stöðva frekari styrkingu krónunnar. Samhliða því að hvetja atvinnuvegina til að fullnýta þau tækifæri sem skapast við fullt afnám hafta.

Nána www.sa.is