Kjör formanns vr upp um 55% í fyrra

Í fréttum Morgunblaðsins í dag kemur fram að laun og bifreiðastyrkir formanna VR hafi numið samtals 26.3 milljónum króna í fyrra saman borið við 17 milljónir króna árið á undan. Um 55% hækkun á þessum kostnaðarlið VR er að ræða.

Ragnar Þór Ingólfsson tók við formennsku af Ólafíu Rafnsdóttur þann 28. mars 2017. Ekki kemur fram hvernig þessi laun og birfreiðastyrkir skiptast milli fyrrverandi og núverandi formanns.

Þessi mikla hækkun starfskjara vegna formanna VR vekur sérstaka athygli í ljósi mjög harðrar gagnrýni Ragnars Þórs Ingólfssonar á starfskjör æðstu stjórnenda fyrirtækja og ríkisstofnana.