Kjör öryrkja versnað samfellt í 6 ár

Allt frá árinu 2009 hefur örorkulífeyrir hvorki náð að halda í við þróun lægstu launa, verðlags- né launavísitölu, að því er segir í tilkynningu Öryrkjabandalagsins í dag en það krefst sömu kjarabóta fyrir sitt fólk og samið verður um á almennum markaði.


Öryrkjabandalagið bendir á að framfærsluviðmið almannatrygginga sé nú undir 200 þúsundum króna og undir lágmarkslaunum fyrir dagvinnu. Hópur lífeyrisþega hafi búið við mjög bág kjör árum og áratugum saman vegna mjög lágra tekna. Lífeyrir og lágmarkslaun dugi ekki fyrir lágmarksframfærslu. Því sé óhjákvæmilegt að lagfæra kjör þessara hópa.


Í tilkynningu frá bandalaginu í dag segir að lögum samkvæmt eigi lífeyrir almannatrygginga að breytast árlega í takt við launaþróun en þó þannig að hann hækki ekki minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Það hafi ekki verið raunin síðustu ár eins og fyrr greinir. "Stjórnvöld hafa lýst því yfir að hagur ríkisins hafi vænkast," segir í tilkynningu og því sé lag "að leiðrétta kjaragliðnun sem lífeyrisþegar hafa orðið fyrir á síðustu árum." 


Og loks þetta: "Aðalstjórn ÖBÍ gerir þá kröfu að lífeyrir hækki að lágmarki í samræmi við krónutöluhækkun lægstu launa í yfirstandandi kjarasamningagerð."