Flóttafólk: kjartan og framsókn efast

Þverpólitísk samstaða var á fundi borgarstjórnar í dag um tillögu um að hefja viðræður við ríkið um móttöku flóttafólks til Reykjavíkur. Allir fundarmenn samþykktu tillöguna að undanskildum Kjartani Magnússyni, fulltrúa Sjálfstæðisflokks, sem sat hjá.
 

\"Mér fannst svolítið eins og þessi tillaga sem var sett fram með afbrigðum mjög stuttum fyrirvara. Þarna væru menn svolítið að setja hana fram til að hoppa á vinsældarvagninn, þá miklu umræðu sem er núna og í rauninni hvetja til þess að hingað hefjist fjöldaflutningar án þess að það hafi nokkur skoðun farið fram á því hvort við getum í raun og veru tekið á móti mörg hundruð eða mörg þúsund flóttamönnum til viðbótar,“ sagði Kjartan í samtali við Síðdegisútvarpið í dag. 

Framsóknarkonur í borginni sátu fastar við sinn keip í innflytjendamálum á borgarstjórnarfundinum í dag, töldu eðlilegra að verja takmrökuðum fjármunum í fátækt fólk á Íslandf fremur en flóttafólk. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarmanna í Reykjavíkurborg telur talsvert mikilvægara að huga að aðbúnaði aldraðra Íslendinga en því að taka á móti erlendu flóttafólki. 

Hún flutti ræðu á borgarstjórnarfundinum í dag þar sem verið er að ræða málefni flóttafólks og kvað borgaryfirvöld geti lagt af mörkum í þeim efnum. Strax eftir ræðu sína, þar sem hún benti á mikilvægi þess að skoða allar hliðar málsins, svo sem kostnað sem er samfara því að taka á móti flóttafólki, skaut hún inn niðurlagi hennar á Facebook-vegg sinn sem hljóðaði svo: \"Áskorun til allra þeirra sem skrifað hafa á Kæra Eygló hópinn. Í dag eru 500 einstaklingar og fjölskyldur á biðlista eftir stuðningi (þörf á stuðningsfjölskyldum, liðveislu, tilsjón og fleira.) Þeir sem vilja virkja kærleikann og hjartahlýjuna strax geta boðið sig fram í það verkefni og afsalað sér endurgjaldi fyrir. Það geri ég hér og nú.“

Á sunnudag, þegar umræðan um aðstoð Íslendinga við flóttafólk reis hvað hæst, skrifaði Sveinbjörg Birna eftirfarandi á Facebook-síðu sína: „Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld.“