Kjartan aðstoðar eyþór arnalds

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi hefur tekið að sér að vera pólitískur ráðgjafi Eyþórs Arnalds, borgarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins, fyrir komandi borgarstjórnarkosningar að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Þar segir að verði Eyþór borgarstjóri að loknum kosningum, muni Kjartan verða aðstoðarmaður hans í því embætti.  Kjartan er að góðu kunnur innan Sjálfstæðisflokksins og hefur verið borgarfulltrúi fyrir flokkinn um langt árabil. Fáir þekkja því betur til málefna borgarinnar, eins og segir í tilkynningunni.

Þá hefur Janus Arn Guðmundsson blaðamaður verið ráðinn framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Starfið felst í alhliða þjónustu við borgarfulltrúa sem og frambjóðendur flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.