Vefritið Kjarninn hefur á grunni Panamaskjalanna upplýst að félag í eigu Dorritar, eiginkonu Ólafs Ragnars Grímssonar, hafi átt félag skráð á Bresku Jómfrúareyjum frá 1999-2005. Kjarninn og Reykjavík Grapevine hafa gögn undir höndum sem sýna þetta.
Kjarninn rifjar í frétt sinni upp að Ólafur Ragnar fór í viðtal til fréttakonunar Christiane Amanpour, á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN, síðastliðinn föstudag. Amanpour spurði Ólaf Ragnar um Panamaskjölin og hreint út hvort hann eða fjölskylda hans væri tengd aflandsfélögum:
„Átt þú einhverja aflandsreikninga? Á eiginkona þín einhverja aflandsreikninga? Á eitthvað eftir að koma í ljós varðandi þig og fjölskyldu þína?” spurði hún. Ólafur var afdráttarlaus í svörum: „Nei, nei, nei, nei, nei. Það verður ekki þannig.”
Kjarninn beindi fyrirspurn til embættis forseta Íslands vegna Lasca Finance. Í svarinu segir: „Hvorki forseti né Dorrit vita neitt um þetta félag né hafa heyrt af því áður. Faðir Dorritar er látinn og móðir hennar, sem er 86 ára, man ekki eftir neinu slíku félagi.\"