Kjarninn byrjar með þátt á hringbraut

Kjarninn er nýr vikulegur fréttaskýringaþáttur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í umsjón Þórðar Snæs Júlíussonar og Þórunnar Elísabetar Bogadóttur, ritstjóra fréttamiðilsins Kjarnans.

Upplegg þáttanna er á þann veg að eitt mál verður tekið fyrir í hverjum þætti og það greint. Í síðari hluta hvers þáttar kemur svo viðmælandi sem svarar spurningum um málið. Ítarleg fréttaskýring um efni hvers þáttar mun birtast inni á Kjarninn.is daginn eftir frumsýningu.

\"Það er mikill fengur fyrir okkur á Hringbraut  að fá jafn virtan og vandaðan fréttamiðil og Kjarninn er til liðs við okkur,\" segir Sigmundur ernir Rúnarsson, dagskrárstjóri Hringbrautar, en hann segir að þessi nýi þáttur Þórðar og Þórunnar sé liður í því að efla enn frekar þjóðmálaumfjöllun á stöðinni.

Í fyrsta þætti ræða Þórður Snær og Þórunn Elísabet um húsnæðismál. Af hverju er neyðarástand á húsnæðismarkaði, á hvaða hópum bitnar það helst, hverjir græða á því og hvað er hægt að gera?

Í síðari hluta þáttarins situr Þorsteinn Víglundsson, ráðherra húsnæðismála, fyrir svörum og segir frá þeim aðgerðum sem eru í undirbúningi vegna vandans. Þær eru margar hverjar róttækar.

Kjarninn er á dagskrá Hringbautar öll miðvikudagskvöld klukkan 21:00 og fer fyrsti þátturinn í loftið í kvöld.