Kjarasamningur grunnskólakennara í höfn

Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga og Félag grunnskólakennara skrifuðu undir kjarasamning á fimmta tímanum í dag. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, upplýsti um þetta í oddvitakappræðum helstu flokka sem sýnt var í opinni dagskrá á Stöð 2 og í beinni útsendingu á Vísi.

Þetta staðfestir Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara í samtali við Vísi. Samingurinn var undirritaður síðdegis í dag. 

Strax eftir helgi fer fram efnisleg kynning fyrir félagsmenn og í kjölfarið er gert ráð fyrir að kjörstjórn blási til kosninga um samninginn eigi síður en 6. júnínæstkomandi. Samningurinn er með gildistíma til 30. júní 2019.

Nánar á visir.is


http://www.visir.is/g/2018180529199/kjarasamningur-grunnskolakennara-i-hofn