Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins vill að útflutningsgreinar hafi mun meira vægi í gerð kjarasamninga. Úthluta ætti launahækkunum í takt við styrk útflutnings líkt og á hinum Norðurlöndunum.
Þetta kom fram á Morgunvaktinni á Rás eitt á Ríkisútvarpinu í morgun.
Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði ástandið í hagkerfinu að mörgu leyti mjög gott um þessar mundir. Hér sé þó launabreytingataktur langt umfram það sem samræmist stöðugleika til lengri tíma.
Útgangspunktur kjarasamninga á hinum Norðurlöndunum sé að hafa rekstrarskilyrði útflutningsgreina í lagi. „Þar er bara gengið út frá þeirri einföldu staðreynd að til þess að hafa efni á þeim innflutningi sem við þurfum að hafa viðskiptajöfnuð, þurfum við að flytja nægilega mikið út. Það þýðir í stuttu máli að við þurfum að flytja aðeins meira út en við flytjum inn. Til þess þarf auðvitað að vera í lagi með rekstrarskilyrðin hjá útflutningsgreinunum,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgunvaktina á Rúv.