Seðlabankastjóri sagði á kynningarfundi eftir vaxtaákvörðunina að það væri áhætturþáttur fyrir verðbólguhorfur að kjarasamningar á komandi fjórðungum gætu falið í sér meiri hækkun launa en samræmist SALEK samkomulaginu. Spá Seðlabankans gerir ráð fyrir að SALEK samkomulagið haldi. Það hefði hins vegar ekki verið ástæða til að byggja inn í spá bankans að SALEK samkomulagið myndi bresta að svo komnu máli.
SALEK er skammstöfun fyrir samstarf um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga - SALEK. SALEK er afrakstur vinnu sem hófst árið 2013 með úttekt BSRB KÍ ASÍ SA og samninganefnda ríkis Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga á umhverfi kjarasamninga á öðrum Norðurlöndum þar sem áhersla var lögð á heildarendurskoðun samningalíkansins.
rtá
Nánar www.islandsbanki.is/morgunkorn