Kjarasamningar halda

Meirihluti formanna ASÍ vill ekki segja upp kjarasamningumsamningum en niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er nú formlega ljós. Alls greiddu 49 atkvæði en þeir voru með 79.062 félagsmenn (heilsársstörf) á bak við sig.

Í nýrri tilkynningu ASÍ segir að í atkvæðagreiðslunni sem fór fram á formannafundi aðildarfélaga ASÍ hafi þurft bæði meirihluta fundarmanna sem fóru með atkvæði á fundinum og meirihluta þess atkvæðavægis sem að baki þeim standa. Þar sem ekki náðist meirihluti fundarmanna hafi tillaga um uppsögn samninga felld.

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði munu því gilda til ársloka.

Í tilkynningu segir enn fremur: „Þeir sem vildu halda í samninginn töluðu m.a. um að aðeins væru 9 mánuðir eftir af samningnum og hann tryggði 3ja prósenta almenna launahækkun 1. maí og rúmlega 7 prósenta hækkun lágmarkslauna. Nota ætti tímann til hausts til að móta kröfugerð og undirbúa næstu kjaraviðræður. Það var þungt hljóð í þeim sem vildu segja upp og sterk krafa um að verkalýðshreyfingin setti fótinn niður í samfélagi misskiptingar. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir að taka til sín ávinning af starfi verkalýðshreyfingarinnar sem hefur lagt mikla áherslu á hækkun lægstu launa, en stjórnvöld tekið að stórum hluta til baka með skerðingu bóta. Úrskurðir kjararáðs og hækkanir á launum æðstu stjórnenda banka og Landsvirkjunar urðu auk þess mörgum fundarmönnum tilefni til gagnrýni.\"

Atkvæði fóru þannig að tæplega 67 prósent atkvæðabærra fundarmanna vildu halda í samninganna en 33 prósent segja þeim upp.

Niðurstaða formanna var þessi:

Já, vil segja upp 21 (42,9%)

Nei, vil ekki segja upp 28 (57,1%)

Miðað við vægi atkvæða verða því hlutföllin sem fyrr segir, 77 á móti 33 prósentum.