Kjararáð lagt niður í frumvarpi

Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lagt fram frumvarp um að lög um kjararáð falli úr gildi 1. júlí næstkomandi og kjararáð þar með lagt niður.

Í frétt Morgunblaðsins í dag segir að hafi þann 1.maí á næsta ári ekki verið tekin ákvörðun um annað fyrirkomulag mála skuli laun þeirra sem heyrðu undir kjararáð taka breytingum í samræmi við hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa ríkisstarfsmanna eins og hún birtist í tölum Hagstofu Ísland fyrir næstliðið almanaksár.

Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, segir í samtali við blaðið að ástæða þess að meirihlutinn leggi til að lögin verði felld úr gildi sé sú að skipunartími núverandi kjararáðs sé að renna út.  Unnið sé að lagasetningu á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra um að komið verði skikkanlegri skipan á ákvörðun launa þeirra hópa sem heyra undir kjararáð. Segist Óli Björn viss um að frumvarpið verði að lögum fyrir sumarhlé Alþingis.

Starfshópur forsætisráðherra lagði m.a. til að horfið yrði frá því að úrskurða í kjararáði, eða hjá sambærilegum úrskurðaraðila, um laun þjóðkjörinna fulltrúa, æðstu embættismanna, ráðherra og annarra sem undir ráðið heyra. Einnig var lagt til að laun þingmanna verði ákvörðuð í lögum um þingfararkaup með fastri krónutölufjárhæð og laun ráðherra verði ákveðin með sama hætti í lögum um Stjórnarráðið.