Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir sitt fólk vera tilbúið til átaka um launahækkanir, en samningar framaldsskólakennara, eru lausir í haust. „Við eigum hækkun inni. Helst þess vegna vorum við ekki með í Salek,“ segir Guðríður í Þjóðbraut í kvöld.
Guðríði er tíðrætt um úrskurð kjararáðs. „Það sem vekur athygli mína varðandi þessa ákvörðun kjararáðs er annars vegar sú staðreynd að nú þegar aðilar vinnumarkaðarins, fyrir utan Kennarasamband Íslands og BHM, hafa sett ramma um launahækkanir almennings til næstu ára þá telur kjararáð forsendur til þess að hækka tiltekna hópa umfram aðra. Leggur ráðið þar til grundvallar þau sjónarmið að álag í starfi þessara einstaklinga hafi aukist svo mikið á síðustu misserum að það beri að meta til launa.“
Í þættinum í kvöld ræðir hún þetta enn frekar. „Við framhaldsskólakennarar munum halda þessu til haga í haust þegar við setjumst að samningaborðinu, kjararáð hefur lagt okkur til gott veganesti.“