Kjaradómur skekur almennan markað

\"Ég held að það sé al­veg ljóst að það mun reyna á for­send­ur í kjara­samn­ingi okk­ar,“ seg­ir Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðusam­bands­ins Íslands en sambandið skoðar nú áhrif kjaradóms á nýgerða samninga á almennum vinnumarkaði. 

Að mati ASÍ eru hækk­an­irn­ar í úr­sk­urði gerðardóms mun meiri en fólust í kjara­samn­ing­un­um á al­menna vinnu­markaðinum, að því er fram kem­ur í frétta­skýr­ingu í Morg­un­blaðinu í dag.

Ný grein­ing á hækk­un­un­um verður til um­fjöll­un­ar í miðstjórn ASÍ á morg­un. Að mati ASÍ eru hækk­an­ir hjúkr­un­ar­fræðinga í heild sinni í fjög­urra ára samn­ingi um 29,8% þegar tekið hef­ur verið til­lit til fjár­muna sem setja á í stofn­ana­samn­inga. Hækk­an­ir BHM-fé­lag­anna í tveggja ára samn­ingi eru um 18% en samn­ing­ar ASÍ-fé­lag­anna færðu þeim hins veg­ar um 18,5% á fjög­urra ára tíma­bili að því er segir í úttekt blaðsins.