Kjalvegur opnaður 20 dögum of seint!

Kjalvegur opnast í daga, tuttugu dögum á eftir áætlun ef svo má segja, en í venjulegu árferði síðustu áratuga hefur hann verið greiðfær venjulegum bílum um og upp úr miðjum júní.

Vegarerðarmenn hafa unnið að því þessa vikuna að hefla veginn milli Kerlingarfjallaafleggjara og Hveravalla sem vanalega er torfærastur að vori á þesari gömlu þjóðleið milli Suðurlands og Norðurlands.

Verkið tók öllu lengri tíma en vanir vegagerðarmenn eiga að venjast og segir Páll Halldórsson í Morgunblaðinu í dag að ef þeir hefðu ekki mokað býsn af snjó af veginum hefði hann ekki opnast fyrr en í annarri viku júlí.

Fjallabak hefur líka verið óhemju snjóþungt í vetur og þar hefur getið að líta þriggja metra snjóalög yfir veginum inn í Landmannalaugar sem vanalega hafa verið auð um miðjan júnímánuð. Vegurinn þangað er nú orðinn fær jeppum og fjórhjóladrifnum bílum, en margar gönguleiðir á þessum slóðum eru illfærar eða í besta falli seinfarnar vegna mikilla snjóalaga.