Sérsveit lögreglunnar lokaði Brautarholtsvegi á Kjalarnesi í gær eftir að maður á sjötugsaldri sást þar með skotvopn og sýndi af sér ógnandi í framkomu á heimili sínu ofan við Grundarhverfi á Kjalarnesi.
Fólk í grenndinni tilkynnti um háttalag mannsins og var það var metið alvarlegt, að því er fram kemur í tilkynningu sem lögregla sendi frá sér nú í morgun.
Brautarholtsvegi var lokað af frá því fyrir klukkan 21:00 fram á tólfta tímann. Þá var maðurinn handtekinn á leið frá vettvangi, óvopnaður. Hann hefur fengið viðeigandi aðstoð, að sögn lögreglu. Í bíl hans voru vopn, þar á meðal skotvopn.
Að sögn vegfaranda voru bílar sem fóru um svæðið stöðvaðir af vélbyssuvopnuðum víkingasveitarmönnum, ökumenn beðnir um skiríki og krafðir um ástæðu ferðar.