Óvenjuleg mistök áttu sér stað í kistulagningu sem haldin var í Neskirkju á fimmtudag í síðustu viku, þar sem rangur maður var lagður fyrir framan syrgjandi ættingja. Fréttamiðillinn Vísir greindi fyrst frá þessari einkennilegu uppákomu, þegar í ljós kom að ættingjar og sóknarprestur könnuðust ekki við þann látna þegar hulunni var svipt af kistunni.
Í samtali blaðamann Vísis segist sóknarprestur Neskirkju, Örn Bárður Jónsson, hafa upplifað margt á löngum ferli en þetta atvik hafi verið einstakt. Þá segir Örn að aðstandendur hafi blessunarlega verið skilningsríkt og tekið þessu af miklu jafnaðargeði. Á örskömmum tíma var rétta kistan fundin og fór kistulagningin fram aðeins hálftíma eftir áætlun.
Málið svipar til atriðis í grínmynd en Örn segir að útfarastjórar hafi verið miður sín yfir þessum ruglingi. Slíkt geti þó gerst og þá sé mikilvægt að gangast við mistökunum þegar í stað og leiðrétta tafarlaust.