Kirkjan: illdeilur og óauglýst staða

Agnes M. Sigurðardóttir biskup bjó til nýja stöðu fyrir prest eftir að samskiptavandi kom upp innan þjóðkirkjunnar og réði annan tveggja deilenda sem áttu í erfiðleikum með samskipti í stöðuna án þess að auglýsa stöðuna.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Þar kemur fram að Skírnir Garðarsson sem áður var prestur í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ hafi verið skipaður héraðsprestur og færður í annað prófastdæmi án þess að starfið hafi verið auglýst. Skírnir deildi samkvæmt frétt Morgunblaðsins við Ragnheiði Jónsdóttur sóknarprest Lágafellskirkju.

Hringbraut hefur sent Biskupsstofu fyrirspurn þar sem spurt er hvers vegna nýja staðan hafi ekki verið auglýst en eftir því sem upplýsingar herma er sú ákvörðun ekki óumdeild meðal presta.