Kínverskum ferðamönnum fjölgar á íslandi – „tækifærin eru til staðar en þau eru ekki sjálfgefin“

Í leiðara Fréttablaðsins í dag veltir Davíð Stefánsson ritstjóri blaðsins því fyrir sér hvernig vöxtur kínversks efnahagslífs geti veitt Íslendingum tækifæri. Hann bendir til að mynda á að kínverska millistéttin sé orðin fjölmennari en íbúar Bandaríkjanna og Kanada samanlagt. Kínverjar eigi vissulega enn langt í land með að ná þeim kaupmætti og lífsgæðum sem tíðkast hér á Vesturlöndum en séu engu að síður að slá hvert efnahagsmetið á fætur öðru.

„Þessi bættu lífskjör og kaupgeta Kínverja þýðir ekki síst að þeir hafa meiri áhuga á ferðalögum. Í dag áætlar ferðamannastofnun Sameinuðu þjóðanna að Kínverjar beri ábyrgð á fimmtungi heildarneyslu allra ferðamanna heimsins,“ segir Davíð.

Hann bætir því við að fyllsta ástæða sé til að huga vel að því hvernig vöxtur kínverska efnahagslífsins kunni að gefa Íslendingum tækifæri. „Hvar liggja þau og hvað ber að varast? Tækifærin eru til staðar en þau eru ekki sjálfgefin, um þau verður keppt. Það að Íslendingar nái árangri í þeirri keppni er undir okkur sjálfum komið“

Davíð segir að samkvæmt tölum Ferðamálastofu hér á landi séu Kínverjar fjórði fjölmennasti hópur ferðamanna hér á landi síðastliðna 12 mánuði, eða 93.829. „Það eru 4,3 prósent af heildar ferðamannafjölda síðustu 12 mánaða. Kínverskum ferðamönnum hefur fjölgað um 12,6 prósent frá fyrra ári.“

„Þetta eru verðmætir ferðamenn. Mælingar á útgjöldum ferðamanna frá janúar til apríl á þessu ári gefa til kynna að útgjöld kínverskra ferðamanna séu um 4,3 prósent af heildarútgjöldum, eða um 4,1 milljarður króna. Meðalútgjöld Kínverja á þessum vormánuðum voru um 336 þúsund krónur. Það eru talsvert hærri meðalútgjöld en annarra þjóða,“ segir Davíð og bætir við að 86 prósent aðspurðra ætli sér að koma aftur og um 79 prósent segjist mæla með landinu sem áningarstað.

Mun halda áfram að fjölga

Davíð bendir á að spár um fjölgun kínverskra ferðamanna séu flestar á einn veg. „Þeim mun fjölga mjög. Það kallar á skýra stefnumörkun, og undirbúning hvað varðar þýðingu upplýsinga, menntun í tungumálum og menningu.“

„Það kallar líka á að íslenska ferðaþjónustan fylgi nýjustu straumum í fjártækni. Greiðsluhegðun kínverskra ferðamanna, ekki síst þeirra yngri, er ólík flestum öðrum. Kreditkortanotkun þeirra er minni en annarra og meira er greitt með reiðufé. Meirihluti þeirra notar rafrænar greiðslulausnir með síma.“

„Sé horft á heimskort Kínverja er Ísland við ystu mörk, landið sem á kínversku ber hið ljóðræna heiti „Bing dao“ eða Íseyjan. Undir norðurljósum togar Íseyjan á heimsenda í æ ríkari mæli til sín kínverska ferðalanga. Tökum vel á móti þeim,“ segir Davíð að lokum.