Kínverskt renminbi í stað dollars?

Vöxtur viðskipta kínverska risahagkerfisins vekur upp spurninguna um hvort alþjóðavæðing gjaldmiðils þeirra, Renminbi- RMB , geti komið í stað Bandaríkjadollarsins.

Það myndi fela í sér að stöðugleikinn í Kína yrði að víkja úr fyrsta sæti og vinna yrði traust fjármálamarkaða og efnahagsvelda. En það er hægara sagt en gert, það sýna misheppnaðar tilraunir Japana með sitt yen fyrr á tíð, enda styðja þeir sterka stöðu dollarsins. En hver veit hver verður þróunin með gjaldmiðlana í Asíu.