Kínverska hrunið smitast til evrópu

Hluta­bréfa­markaðir í Lund­ún­um, Par­ís­ og Frankfurt hafa hríðfallið frá því að þeir voru opnaðir í morg­un. Verðhrunið á kín­versk­um hluta­bréfa­mörkuðum hef­ur smit­ast yfir til Evr­ópu og ótt­ast fjár­fest­ar að áhrif­anna muni jafn­framt gæta í Banda­ríkj­un­um þegar markaðir opna þar eft­ir há­degi.

Að því er fram kemur í viðskiptafréttum Morgunblaðsins í dag hefur FTSE 100 hluta­bréfa­vísi­tal­an í Lund­ún­um lækkað um 2,6% í morg­un, en markaðir í Frakklandi og Þýskalandi féllu um næst­um 3%.

Al­gjört verðhrun varð á kín­versk­um hluta­bréfa­markaði í nótt. Shang­hai Composite hluta­bréfa­vísi­tal­an hríðféll til að mynda um 8,5% og hef­ur ekki lækkað jafn mikið á ein­um degi í átta ár.

Í blaðinu segir að kín­versk stjórn­völd hafi reynt að hug­hreysta ótta­slegna fjár­festa, án ár­ang­urs. Þau hafi leyft stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins að fjár­festa á hluta­bréfa­markaðinum.

Að auki hef­ur olíu­verð lækkað um­tals­vert á sein­ustu dög­um. Hef­ur það ekki verið lægra í sex ár.
 

Dav­id Madd­en, markaðsgrein­andi hjá IG, seg­ir að hluta­bréfa­markaðir séu um þess­ar mund­ir á mik­illi niður­leið: \"Ég held að meiri óvissa sé framund­an,“ seg­ir hann. Fjár­fest­ar geti þurft að bíða í fá­ein­ar vik­ur eft­ir því að markaður­inn taki aft­ur við sér.

Shang­hai vísi­tal­an lækkaði um 12% í sein­ustu viku og hef­ur nú fallið um 30% frá því um miðjan júní­mánuð.

Áhrif­anna gætti víðar, en Dow Jo­nes hluta­bréfa­vísi­tal­an í Banda­ríkj­un­um lækkaði um 6% í liðinni viku og breska vísi­tal­an FTSE 100 um 5%. Hef­ur sú síðar­nefnda ekki lækkað eins mikið á einni viku í átta mánuði.

Fyrr í mánuðinum felldi Seðlabanki Kína gengi kín­verska gjald­miðils­ins, jú­ans­ins, í viðleitni sinni við að auka út­flutn­ing frá land­inu.

Fjár­fest­ar í Evr­ópu ótt­ast að ódýr­ara júan þýði að evr­ópsk­ar út­flutn­ings­grein­ar verði minna sam­keppn­is­hæf­ar, samkvæmt því sem segir í samantekt Morgunblaðsins um málið í dag.