Kínverjar vilja bræða skagfirskt ál

Kínverskir aðilar eru tilbúnir að skoða uppbyggingu álvers við Hafursstaði í Skagafirði að því er Valgarður Hilmarsson forseti bæjarstjórnar Blönduúsbæjar fullyrðir.

Þetta er fullurt á vef Húnahornsins, fréttavef Húnvetninga, en þar segir í gær að Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri á Blönduósi hafi kynnt hugmyndir um uppbyggingu álvers við Hafursstaði í Skagafirði, en heildarfjárfestingin við hana er sögð vera 78 milljarðar króna. Á vefnum segir að unnið hafi verið að hugmyndinni frá því á síðasta sumri.

Áætluð orkuþörf verksmiðjunnar er sögð verða rösklega 200 MW í fyrsta áfanga, framleiðslugetan um 120 þúsund tonn til að byrja með og er búist við því að álverið kalli á 240 heilsársstörf fyrir utan 200 önnur í afleiddum störfum.

Nánar er fjallað um málið á huni.is.