Kínverjar byrja norðursiglingar

Forsvarsmenn eins stærsta ríkisrekna vöruskipafyrirtækis Kína, CHINA COSCO hafa tilkynnt að skip félagsins muni senn hefja reglubundnar siglingar á milli Evrópu og Kína um svokallaða norðausturleið.

Forkólfar fyrirtækisins segja að siglingaleiðin, sem hefur smám saman verið að opnast eftir því sem hlýnað hefur á þessum norðurslóðum, sé ekki einasta hagkvæm heldur tryggi hún líka Kínverjum aðgang að mjög mikilvægu svæði sem þarfnist mikilla vísindarannsókna á næstu árum og áratugum. Kínverjar hafi löngum haft áhuga á að taka þátt í því starfi, enda miklir hagsmunir í húfi fyrir siglingar með vörur milli heimshafanna, takist að halda þessari leið opinni til langs tíma.