Kindur á Súgandafirði leita skjóls í hvassviðrinu

Mikið hvass­virði er á Vestfjörðum þessa stundina. Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörun á svæðinu upp í appelsínugulan. Mikilli rigningu er spáð á Vestfjörðum og auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum.

Kindurnar á Súgandafirði hafa fundið sér gott skjól í Breiðadals­göng­um. í hvassviðrinu. Eins og sjá má á mydninu voru fjölmargar kindur búnar að leita sér skjóls saman í göngunum.

Vegfarendur og útivistarfólk er beðið að fylgjast vel með veðurspám og taka mark á aðvörunum Veðurstofunnar.