Stefnan er þó enn sem fyrr að hafa eftirlit með kapítalismanum en ekki útrýma honum því kínverskt efnahagslíf er í eðlilegu horfi og lokið er hveitibrauðsdögum hinnar mildu meðferðar kínverska Kommúnistaflokksins á efnuðum Kínverjum.
Stjórnmálaskýrendur á Vesturlöndum fara ómildum orðum um ástand og horfur í Alþýðulýðveldinu Kína. Þeir minna á að harðsvíruð stefna kínverskra kommúnista er þeim ill nauðsyn en þeim þó arðvænlega - a.m.k. um stundarsakir.
Xi Jinping er í senn ríkisoddviti Kína - sem forseti landsins - og hann er aðalritari Kommúnistaflokks Kína. Hann er harður í horn að taka segja þeir sem þekkja til hans.
Xi Jingping fylgir flokkslínum hvívetna. Hann hefur ekki enn tengst alvarlegum hneykslismálum og er gegnheill kínverskur kommúnisti eins og svo ljóslega kemur fram núna á 19. landsþingi Kommúnistaflokksins
Xi Jinping hefur nú styrkt völd sín og flokksins en þá frekar og mun hann leiða flokkinn næstu fimm við að ná öllum þeim markmiðum sem hann setti Kína í þriggja klukkustunda langri setningaræðu sinni sem er upp einar á 65 blaðsíður.
Það hét Xi Jingping frekari efnahagsumbótum og sagði að linnulaus herferð Kommúnistaflokksins og stjórnvalda gegn spillingu innna flokksins héldi áfram Milljónum flokksmanna og embættimanna hefur þegar verið harðlega refsað.
Maó formaður boðaði að ógnir væru nauðsynlegt pólitískt verfæri enda eru ofbeldi og ógnun handhæg til að tryggja völd kommúnista í borgum og sveitum Kína. Xi Jingping andmælir ekki þessu sjónarmiði Maó.
Stjórnmálaskýrendur segja að Xi Jinping sé því ekki eftirbátur Maó formanns. Hann mun ef honum þykir þess þörf saka ósamvinnuþýða flokksmenn um gangbyltingarstarfsemi og draga þá fyrir alþýðudómstóla.
Á næstu fimm árum fjölgar því ólánssömum fórnarlömbum herferðar Xi Jingping og samverkamanna hans gegn meintum gagnbyltingarmönnum í flokknum.
Herferðir gegn gagnbyltingarmönnu eru afar nytsamar sem stjórntæki í Kína samtímans. Þessar herferðir ganga jafn yfir þá sem spillitir eru og þá sem eru heiðarlegir - yfir seka og saklausa.
Xi Jingping og Kommúnistaflokkur Kína vilja hlýðnar kínverskar vélbrúður sem eru án innri sannfæringar. Þessar herferðir eru kommúnistum gagnlega að svo miklu leyti sem þær uppræta mikið að hinni hættulegu anstöðu sem er við stjórn þeirra og er vissulega fyrir hendi í Kína.
Kínverskir kommúnistar gera sér ljóst að þeir eru í háska staddir og þeir munu bregðast við með offorsi spá stjórnmálaskýrendur.
Þeir tefla á fremsta hlunn sem mun hafa hörmulegar afleiðingar í för með sér fyrir Kínverja.
Nær Alþýðulýðveldið að verða sjötugt ári 2019? Já vissulega fagna menn því afmæli og láta sér í léttu rúmi liggja hvaða fórnir þarf að færa til að tryggja að afmælisbarnið haldi upp á daginn.
Þessi frétt byggir á aðföngum frá Bloomberg fréttaveituni og BBC.