Trump kastaði stríðshanskanum í viðskiptastríðinu og nú hafa Kínverjar slegið til baka.
Í gær birtu bandarísk viðskiptayfirvöld lista rúmlega 1.300 vörutegunda sem eiga nú að bera 25% toll. Um er að ræða alls konar vörur þar á meðal varahluti í vélar, gervihnetti, fatnað og lyf.
Kínverjar svöruðu svo af hörku í dag með yfirlýsingu um 25% innflutningstolla sem leggjast munu á enn fleiri bandarískar vörur en áður hafði verið tilkynnt. Alls eru þetta 106 vörutegundir, upp á samtals um 50 milljarða dala í útflutningsverðmæti. Kínverjar ætla að tolla bandaríska bíla, flugvélar, auk sojabauna og ýmsa efnavöru.
Markaðir hafa dekið dýfu í dag við fréttirnar. Sérfræðinga vonast eina helst til að svar Kínverja sé ætlað til þess að þrýsta Bandaríkjunum til þess að semja um að fara mildilegar í sakirnar.