Kína ræddi að ná tökum á kusner

Aðgangur Jareds Kushners, tengdasonar Trumps Bandaríkjaforseta, að leynigögnum hefur verið takmarkaður. Í frétt Washington Post í dag segir að fjórar þjóðir í það minnsta hafi hugleitt að \"ná tökum\" á Kushner í gegnum ýmis viðkvæm viðskiptatengsl hans. Um er að ræða Sameinuðu arabísku furstadæmin, Kína, Ísrael og Mexikó.

Kushner hefur farið fyrir mikilvægum málaflokkum innan Hvíta hússins, t.d. sáttaviðræðum Ísraels og Palestínumanna. John Kelly starfsmannastjóri Hvíta hússins segist þó hafa fulla trú á að Kushner geti haldið áfram að sinna þeim málaflokki. Engu að síður er talið augljóst að staða hans muni veikjast innan stjórnkerfisins.

Kushner hafði verið með bráðabirgðaaðgang að trúnaðarupplýsingum, sem gerði honum m.a. kleift að sjá daglegrar skýrslur forsetans frá leyniþjónustustofnunum.