Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu er til í að hitta Donald Trump Bandaríkjaforseta á hlutlausa beltinu milli Kóreuríkjanna, í Friðarhúsinu í þorpinu Panmunjom á mörkum Norður- og Suður-Kóreu. Þetta er haft eftir stjórnarheimildum í N-Kóreu.
Trump stakk upp á þessari staðsetningu fyrirhugaðs fundar þeirra í gær. Kim átti þar fund með Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, á föstudaginn var.
Trump sagði á Twitter að mörg lönd hafi verið nefnd sem mögulegir fundarstaðir, en spyr hvort ekki væri heppilegast að halda fundinn þar sem á sínum tíma var gengið frá vopnahléi ríkjanna.
Numerous countries are being considered for the MEETING, but would Peace House/Freedom House, on the Border of North & South Korea, be a more Representative, Important and Lasting site than a third party country? Just asking!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 30, 2018