Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tekið boði Kims Jong-Uns leiðtoga Norður Kóreu um viðræður ríkjanna. Þetta var tilkynnt rétt í þessu í Hvíta húsinu af hálfu þjóðaröryggisráðgjafa Suður-Kóreu, Chung Eui-yong.
Yfirlýsingarnar í kvöld koma í kjölfar frétta í fyrradag um að Norður-Kóreumenn væru tilbúnir að ræða við Bandaríkin um að þeir hætti við kjarnorkuvopnaáætlun sína.
Trump kveðst reiðubúinn til viðræðna við Kim Jong-Un um kjarnorkuafvopnun. Gert er ráð fyrir að fundur Kims og Trumps verði haldinn í kjölfar viðræðna fulltrúa Suður- og Norður Kóreu, sem ákveðið hefur verið að halda í apríl.
Sendinefnd Suður-Kóreu hefur fundað með Trump í Hvíta húsinu í kvöld og flutti honum bréf frá leiðtoga Norður-Kóreu með ósk hans um fund þeirra Trumps.
Norður Kóreumenn hafa samþykkt að stöðva allar kjarnorkuvopnatilraunir meðan á viðræðunum stendur.
Þetta yrði í fyrsta skipti sem nokkur Bandaríkjaforseti hittir leiðtoga Norður Kóreu.
Uppfært 00:15