Kim jong-un var í kína

Nú hefur loksins verið staðfest að Kim Jong-un leiðtogi Norður Kóreu heimsótti Kína og átti „árangursríkar viðræður“ við Xi Jinping forseta Kína.

Þetta var fyrsta utanlandsheimsókn Kims sem vitað er um síðan hann tók við stjórn 2011.

Samkvæmt Xinhua, opinberri fréttastofu Kína, sagðist Kim Jong-un tilbúinn að hætta þróun kjarnavopna, með ákveðnum skilyrðum þó.

Gert hafði verið ráð fyrir að löndin myndu eiga viðræður fyrir fyrirhugaða fundi Norður Kóreu með Suður Kóreu og Bandaríkjunum, enda Kína mikilvægasta viðskiptaþjóð Norður Kóreu.

Áætlað er að Kim Jong-un fundi með Moon Jae-in forseta Suður Kóreu í apríl og Trump Bandaríkjaforseta í maí.