Nýr sjónvarpsþáttur hefur göngu sína á Hringbraut á mánudagskvöld klukkan 20.30 sem er helgaður helstu bíladellukörlum landsins, en það er að sögn þeirra sem til þekkja einn sérstæðasti hópur dellufólks í landinu.
Þættirnir taka við af viðskiptaþættinum Hringtorgi sem verið hefur á dagskrá Hringbrautar frá byrjun, eða í þrjá mánuði, og verða átta þættir sýndir til að byrja með af nýju bílaþáttunum, en von er á framhaldi þáttaseríunnar mæsta haust. Þessir bíladelluþættir bera heitið Kíktu í skúrinn og standa ríkulega undir nafni, enda segir umsjármaður þeirra, Jóhannes Bachmann, að það sé alger upplifun fyrir sig jafnt sem aðra að komast inn í þá helgidóma sem margreyndir bílaáhugamenn dvelja í helst öllum stundum lífsins.
"Við skoðum allt í þessum þáttum sem við kemur bílum og kynnumst rækilega öllu því góða og áhugaverði fólki sem getur ekki hugsað sér neitt skemmtilegra en að vera í bílum og tækjum og tólum," segir Jóhannes sem sjálfur hefur verið bíladellukarl frá unglingsaldri. Hann segir þetta áhugamál líklega vera það vinsælasta á meðal karlmanna í landinu - og það sé með hreinum ólíkindum að sjá og heyra hvað margir leggi mikið á sig til að svala bílaáhuga sínum. Allt muni það birtast í lifandi og skemmtilegum þáttum sem opna marga merkilegustu bílskúrana í landinu upp á gátt.
Kíktu í skúrinn er sem fyrr segir frumsýndur klukkan 20.30 á mánudagskvöldum á Hringbraut en verða jafnframt sýndir á vefnum hringbraut.is.