Í þessum þætti skoðum við Packard Clipper Custom Sedan árgerð 1955 sem er í eigu Sigurbjörns Helgasonar. Hann er búinn að eiga bílinn frá 17 ára aldri og var hann hans fyrsti bíll. Bíllinn er óuppgerður og er eins og þegar hann kom frá verksmiðju sama hvar á það er litið.
Sigurbjörn hefur varðveitt þetta glæslega eintak sem hann notar enn þann dag í dag og ekur á um götur borgarinnar á góðviðrisdögum. Þarna fara saman tveir góðir. Stjórnandi þáttarins, Jói Bachmann, segir:
„Svo hittum við Sigmar Sigurðsson sem er með Saab 96 árgerð 1962. Þessi Saab er óuppgerður og upprunalegur. Sigmar fékk bílinn í arf frá föður sínum sem keypti bílinn af nýju bílaumboði á sínum tíma Sveinn Björnsson. Þessi flotti saab er því búinn að vera í sömu fjölskyldu í 56 ár. Hér er frábær saga þessa bíls og fjölskyldunnar sem er einstök.“
Jói Bachmann bætir við: „Ég fór í heimsókn til Barka ehf. sem sérhæfir sig í glussalögnum, börkum, tengjum og dælum ýmiskonar fyrir bíla og tæki af öllum toga. Ég fékk kynningu á bremsuslöngum fyrir bíla og mótorhjól og þá valmöguleika sem til eru hjá þeim og einnig sérsmíði fyrir viðskiptavini Barka.“
Þátturinn er sýndur klukkan 20:00 í kvöld á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut.