Kíkt í skúrinn í kvöld kl. 20.30

 Kíkt í skúrinn í kvöld kl 20:30 á Hringbraut.  Í þessum þætti kynnumst við Ultima Evolution árgerð 2017 í eigu Sveinbjörns Hrafnssonar og Önnu Maríu Moestrup. Þessi Ultima er nýskráð 2018 og er lang yngsti bíllinn sem hefur komið fram í þáttunum Kíkt í skúrinn.  Aðeins er einn bíll af þessari gerð framleiddur á viku hjá framleiðanda. Þessi Ultima vegur aðeins um 1.020 kg og er um 550 hestöfl.  Einstakur bíll sem vert er að fræðast um. 

Svo er það Guðmundur Árni Pálsson (Gummi múr) og María Höbbý Sæmundsdóttir, þau eiga einstakan Ford Mustang Saleen árgerð 2006, en aðeins voru framleiddir um 1200 bílar af þessari gerð og er þessi bíll númer 987. Hann skilar rúmlega 500 hestöflum, flottur og skemmtilegur bíll. 

Svo er komið að Mercury Cougar 1969 sem við höfum verið að sjá aðeins af í gegnum þættina. Nú verður hann sprautaður hjá Bílasprautun Íslands og þar heyrum við í Arnþóri Sigurðarsyni Bílamálara. Cougarinn var sprautaður með gúmmí efni frá Landvélum. Haukur Unnar Þorkelsson er maðurinn sem veit allt um „dippingu“ og þetta efni sem notað var á bílinn. Cougarinn var unnin undir sprautun og topplúgu lokað hjá Réttum bílum. Vel var vandað til verka og glæsilega unnið hjá þeim. Þetta er þáttur upp á hátt í 1400 hestöfl!!