Kíkt í skúrinn hjá steina í svissinum

Þúsundþjalasmiðurinn og þjóðsagnapersónan Steini í Svissinum er gestur Jóa Bachmann í bíladelluþættinum Kíkt í skúrinn á Hringbraut í kvöld, en einu gildir hvort Steini á við báta, skip, hús eða bíla; allt leikur í höndum hagleiksmannins.


Steini er auðvitað kunnastur fyrir að gera upp bíla fyrir aðra og þá helst frá grunni og eru þeir ófáir sem hafa notið handbragðs þessa meistara sem gefur sig alltaf allan í hvert verkefni. Um þessar mundir er hann að gera upp bíl fyrir sig sem er AMC Paser, en þar er líklega á ferðinni sá eini sinnar tegundar sem er eftir hér á landi og sá eini sem var fluttur inn af umboði. Þessi bíltegund er sennilega best þekkt fyrir að hafa verið í myndinni Wayne's world og Steini gerir hana upp eftir sínu höfði.


Svo er hann með Mustang 1969 Mark 1 í skúrnum sínum og sá er með 351 Cleveland mótor,sem hann er að gera upp fyrir eiganda þess bíls - og er hann 90% uppgerður. Hann er endursmíðaður frá grunni.


Í þættinum er Njáll Gunnlaugsson mótorhjóla- og ökukennari tekinn tali en hann er vel þekktur meðal mótorhjólamanna. Við fáum að skoða hans skúr og hvað hann er að dunda sér, en hann er til dæmis með eitt af fyrstu löggumótorhjólum sem voru í notkun á Íslandi og er það eins og nýtt eftir hann. Svo fræðust við um það hvernig Café Racer mótorhjólin urðu til í kringum 1955 og eru mikið að ryðja sér til rúms aftur í dag, en Njáll er einmitt með eitt slíkt í smíðum.

Þátturinn Kíkt í skúrinn er frumsýndur klukkan 20.30 í kvöld.