Maggi Hot Rod eða Magnús Magnússon verður heimsóttur í bíladelluþættinum Kíkt í skúrinn í kvöld, en þessi öðlingur hefur smíðað fjöldann allan af svokölluðum hot-road bílum um ævina og vakið mikla athygli heima og erlendis fyrir frábæra smíði og vandvirkni.
Núna er karlinn með í smíðum Ford Cup 1946 með 350 vél og 700 skiptingu, 9,3 hásingu, hlutföll 390, en þetta er magnaður bíll og svaðakerra að sögn Jóhannesar Bachmann, umsjármanns þáttarins og bætir við að hann lækki toppinn um 8 sentimetra og lengi hann um 16 sentimetra.
Maggi hefur þegar smíðað Ford Topuler árgerð 1953 sem hann lengdi um 35 sentimetra, breikkaði um 20 sentimetra og lækkaði toppinn um 8 sentimetra. Sá bíll er með 350 vél og hefur vakið mikla athygli allsstaðar sem hann hefur sést. Það hafa farið um 60 bílar um hendur Magga og margur maðurinn sem vill komast með sinn bíl til hans: \"Magnaður maður sem menn leita mikið til,\" segir Jói um þennan viðmælanda kvöldsins.
Þá verður Ljósanótt í Keflavík heimsótt en þangað fara all margir á bílum, hjólum og öðrum fararskjótum til að sýna sig og sjá aðra. Ljósnóttinni fylgir frábær stemning innan um alls kyns glæsikerrur.
Kíkt í skúrinn er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld.