Annar þáttur af Kíkt í skúrinn miðvikudagskvöldið 28. ágúst kl 20.00 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Einar Beinteinsson á flottan Ford Mustang 1965 með 351 windsor. Þessi bíll fór á milli manna og fékk viðurnefnið dominos bílinn en það stóð stutt yfir. Hann notaði Mustanginn í rúm 10 ár en svo tók við uppgerð sem er flott og vel að verki staðið. Öll smáatriði eru glæsileg og skemmtileg saga um bílinn. Þá fékk hann óvæntan glaðing í afmælisgjöf frá fjölskyldunni, eitthvað sem bílaáhugamenn myndu ekki neita að fá að prófa og gera.
Hjálmar Kristinn Hlöðversson betur þekktur sem Hjalli partasali og Krúser-maður gaf sér tíma til að sýna okkur glæslegan Chevrolet Impala 1962 blæju bíl sem hefur fengið marga til að snúa sér við. Hér er um sýningar eintak að ræða sem Hjalli flutti inn og nýtur þess að keyra um borgina með Krúser klúbbnum.
Bílaforritun er eitthvað sem allir ættu að kynna sér sama hvort um heimilisbílinn er að ræða, trukka eða vinnuvélar. Gísli Rúnar Kristinsson á og rekur fyrirtækið Bílaforritun og ég fékk hann til að uppfæra Kía ceed heimilisbíl og verð ég að segja að þetta virkar það var mun meiri kraftur í bílnum eftir forritun, sama eyðsla og skemmtilegri bíll.
Kíkt í skúrinn: ford mustang 1965 og chevrolet impala 1962 blæjubíl
Fleiri fréttir
Nýjast