Kíkt á einn flottasta mustang íslands

Sá eftirsótti eðalbíll sem Mustanginn er verður í aðalrullunni í bíladelluþættinum Kíkt í skúrinn á Hringbraut í kvöld, en þar verður sjónum beint að einu ágætu eintaki frá því herrans ári 1972.

Mustanginn at arna er feðgaverkefni þeirra Ernst K. Berndsen og sonar hans, Friðvins Inga Berndsen en þeir voru nokkur ár að gera bílinn upp saman og útkoman er einn af flottari Mustang bílum landsins. Hvergi hefur verið til sparað og allt gert með mikili natni af þeim feðgum, eins og vel kemur fram í þætti kvöldsins. Aðeins er vitað um einn annan bíl af sömu árgerð og týpu hér á landi, en sá er í uppgerð, að því er sagan segir.

Í þættinum verður einnig tekinn skúr á Valda sem er lunkinn maður með VW Karmann 1963 árgerð sem hann er að vinna í um þessar mundir. Þessi sjaldséði vagn á að vera klár og tilbúinn næsta sumar. 

Loks er að finna í þætti kvöldsins umfjöllun um fyrirtækið Kemí sem hefur upp á margt að bjóða fyrir bílaáhugamen sem og fagmenn. 

Þátturinn Kíkt í skúrinn er frumsýndur klukkan 20:30 í kvöld.