llugi Jökulsson, rithöfundur, setur stöðu VG í ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn í sögulegt, og nokkuð dramatískt en skondið samhengi, á Facebook í dag, eftir að könnun Fréttablaðsins leiddi í ljós að fylgi ríkisstjórnarinnar hefur hrapað úr 47 prósentum niður í 36 prósent frá því í desember. Þrátt fyrir það bæta Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn við sig fylgi, meðan VG dalar.
Illugi segir hlakka í Sjálfstæðismönnum við slíkar fréttir:
„Ég keyrði framhjá Valhöll áðan á leiðinni úr sundi og hlátrasköllin í húsinu heyrðust langt út á götu. Þar voru menn bersýnilega að skoða nýjustu skoðanakönnunina sem sýnir að fylgi VG minnkar enn, sem og stuðningur við ríkisstjórnina, en stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn eykst. Og ég heyrði rödd hrópa glaðhlakkalega:
„Jæja, nú erum við að verða búnir að sjúga allt blóð úr enn einum vinstriflokknum og getum brátt spýtt út úr beinunum, rétt eins og við gerðum áður með Alþýðuflokk Emils og Gylfa Þ., Alþýðuflokk Jóns Baldvins og svo Samfylkingu Ingibjargar Sólrúnar. Ætli þessi grey aldrei að læra, hohoho!“
Nánar á