Keyptu á spáni fyrir tæpan milljarð

Íslend­ing­ar keyptu í fyrra fast­eign­ir á Spáni fyr­ir átta millj­ón­ir evra, eða tæp­an millj­arð króna, segir í frétt Morgunblaðsins í dag. Alls eru þetta 47 eignir.

Keypt hefur verið í gegnum spænsku fasteignasöluna Medi­land og samkvæmt upplýsingum þaðan jókst salan eftir að gjald­eyr­is­höft­in voru af­num­inn. Íslenskar fasteignasölur eru farnar að líta þennan markað hýru auga. Nokk­ur hundruð manns mættu á kynningu Mediland umhelgina til að kynna sér fasteignakaup á Spáni.

Ori­hu­ela Costa strönd­in og svæði sunn­an við Alican­te virðast njóta hvað mestra vin­sælda. Flestir kjósa að vera sunn­an við Alican­te og sem næst flug­vell­in­um. Þá vilja flestir kaupa íbúðir en einnig seljist einbýlishús og þá séu margir um að kaupa saman, vinahópar eða  stórfjölskyldan,

Fasteignirnar kosta frá 15 millj­ónum króna og þær dýrustu kosta um 60 millj­ón­ir króna. Flestir kaupa á verði í kringum 25 milljónir króna.