Keypt gögn um panama

Vitað er hve margar aðilar með íslenska kennitölu koma fyrir í gögnum sem Skattrannsóknarstjóri keypti sumarið 2015 og gjarnan eru kennd við Panama. Fjöldi einstaklinga með íslenska kennitölu er samtals 349. Fjöldi aflandsfélaga með íslenska kennitölu er 61.

Alls hafa 34 mál verið tekin til formlegrar rannsóknar hjá yfirvöldum vegna gruns um skattalagbrot. Tveimur verður vísað til hérðasaksóknara en í einu verður gerð krafa um sektir hjá yfirskattanefnd.

Rannsókn sjö mála er á lokastigi. Samkvæmt upplýsingum hafa verið send bréf til 229 einstaklinga í tengslum við upplýsingar úr Panama gögnunum.

Rannsóknir eru enn í gangi á 23 málum og eru sjö mál á lokastigi en rannsókn á 16 málum er enn í gangi. Fyrirséð er að fleiri mál verða tekin til rannsóknar á næstu mánuðum.

Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra nemur endurálgning  opinberra gjalda á grundvelli upplýsinga úr keyptu gögnunum rúmum áttatíu milljónum. Ríkisskattstjóri hefur ekki heimild til að beita sektum en hefur þó heimild til að beita 25% álagi.

Embætti Ríkisskattstjóra var stofnað árið 1962 og hefur embættið með höndum álagningu opinberra gjalda og annarra skatta og gjalda. Þá annast embættið skattaeftirlit. 

rtá

Nánar www.althingi.is  www.rsk.is