Þjóðmálarýnirinn orðhvassi, Jónas Kristjánsson segir að þegar Píratar verði komnir til valda eftir næstu kosningar muni kerfið hægt og bítandi kæfa allar umbótatillögur hreyfingarinnar.
\"Þegar píratar hafa sigrað í næstu þingkosningum, hefst vandi þeirra í alvöru,\" skrifar Jónas og horfir fram í tímann: \"Þeir munu þá komast að raun um, að völd felast ekki í atkvæðaseðlum. Þau hafa alltaf falizt í aðstöðu. Allt kerfið mun vinna gegn árangri ríkisstjórnarinnar.\"
Og hann nefnir dæmi: \"Helztu embættismenn þjóðarinnar eru eign bófaflokkanna, sömuleiðis banksterar, lagatæknar og dómarar, meira að segja Hæstiréttur. Hann ógilti kosningar til stjórnlagaþings, refsaði þjóðinni fyrir heimsku formanns landkjörstjórnar. Það voru verstu landráð Íslandssögunnar.\"
Hann talar enga tæpitungu frekar en áður í bloggi dagsins: \"Nýja stjórnarskráin mun mæta breiðsíðum úr orðhenglafræðum Líndalista. Hún var samin af fólkinu, það líða lagatæknar ekki,\" skrifar hann á jonas.is.