Kerfið er að mígleka

Fréttablaðið greinir frá því í morgun að ríkið verði af um tveimur milljörðum á ári vegna þess að Airbnb og aðrar leiguíbúðarvefsíður þurfa ekki að greiða virðisauka- eða gistináttaskatt, að mati Samtaka aðila ferðaþjónustunnar. Sala á gistingu hér á landi á Airbnb nam um 15 milljörðum árið 2017, en Airbnb greiðir aðeins virðisaukaskatt af þóknun sinni og innheimtir ekki gistináttaskatt.

Framkvæmdarstjóri Samtaka aðila ferðaþjónustunnar, Jóhannes Skúlason, segir öllum skylt að innheimta gistináttaskattinn, ef á annað borð hann er lagður á:

„Þá væri jafnvel hægt að lækka gistináttaskattinn aftur og fá samt meiri skatttekjur.“

Benedikt Jóhannesson, þáverandi fjármálaráðherra, hafði samband við Airbnb í fyrra til þess að taka á málinu og vonaðist til að samkomulag næðist um að fyrirtækið innheimti gistináttaskatt, en það er föst krónutala fyrir hvert leigt herbergi eða íbúð. Málið er enn til skoðunar samkvæmt fjármálaráðuneytinu.

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/07/25/airbnb-innheimtir-ekki-gistinattaskatt-kerfid-er-ad-migleka/