Keppandi í tinder lauginni missir sig yfir sunnevu einars: „ertu búin að sjá hana?“

Keppandi í Tinder lauginni missir sig yfir Sunnevu Einars: „Ertu búin að sjá hana?“

Hinn tvítugi Arnar Hjaltested sparaði ekki stóru orðin þegar hann var spurður út í „celebrity crush“ í nýjum þætti Tinder laugarinnar sem kom út í gær en hann svaraði því að samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einarsdóttir væri crush-ið sitt.

Aðspurður af hverju Sunneva varð fyrir valinu svaraði Arnar: „Af hverju? Heyrðu heyrðu elskan, þú ert kannski mögulega heitari en hún, en ertu búin að sjá hana? Hún er örugglega ekkert miðað við þig en shit.“

Svarið virtist ekki hafa vakið mikla lukku hjá Dagbjörtu Rúriksdóttur sem sá um að spurja spurninganna. „Senda þennan heim í taxa sko,“ svarar annar keppandi léttur í bragði.

Þáttinn í heild sinni má sjá hér: 

https://www.instagram.com/tv/B63s58Cgibg/