Kennurum skipað að snæða lifrarpylsu!

Skiptar skoðanir eru meðal kennara Háskólans á Akureyri um hvort það sé ábyrgt skref eða sýndarmennska að starfsmenn skólans fái leigðan rafbíl til að hamla gegn loftmengun á ferðalögum sínum.

Birgir Guðmundsson, dósent í fjölmiðlafræði við HA, deilir frétt um þetta á eigin fésbókarvegg og segir að margt smátt geri eitt stórt.

Doktor Ingi Eðvarðsson sem áður kenndi við skólann telur framtakið einnig lofsvert en í hinu stóra samhemgi dugi það skammt.

Blandar þá kennarinn og viðskiptafræðimngurinn Sefán Gunnlaugsson sér í leikinn.“ Æi sýndarmennska. Ég legg til sem starfsmaður HA að starfsmönnum og nemendum verði bannað að keyra í vinnuna. Þeir gangi eða taki strædó. Sjálfur er ég starfsmaður HA og er tilbúinn að gangast undir þetta.“

Þótt glensið kunni að vera fyrir hendi felst e.t.v. broddur í spurningu hins geðþekka stjórnmálafræðiprófessors Grétar Þórs Eyþórssonar sem hann beinir til Stefáns vegna ummælanna:

„Viltu ekki líka að okkur verði skipað að borða lifrarpylsu 3var í mánuði Stefán?“