Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, var gestur í Þjóðbraut í gærkvöld. Þar sagði hún okkur, meðal annars, frá breyttu starfi kennara.
„Álag á kennara hefur aukist gríðarlega á síðustu árum. Kennarar búa við þann veruleika að nemendur þeirra sitja í kennslustundum með snjallsímana sína, sem eru ekki bara símar, heldur kvikmyndatökuvélar. Orð og athafnir kennarans geta þannig verið tekin upp, „editeruð“ og slitin úr samhengi og send þannig út í kosmósið. Nemendur geta tekið myndir af kennaranum sínum og sent á samfélagsmiðlana með niðrandi ummælum. Gerð er sú krafa að kennarinn sé til taks utan dagvinnumarka á fésbók eða svari tölvupóstum.“
Kennarinn má búa við opinbera umræðu um störf sín á samfélagsmiðlunum án þess að geta borið hönd fyrir höfuð sér og er oft fundinn sekur af dómstóli götunnar.
„Að vera kennari er ekkert endilega þægilegri innivinna en að vera forstjóri Útlendingastofnunar eða fangelsismálastjóri. Álag á kennara hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum sem og umsvif starfsins, líkt og þeirra sérfræðinga hjá hinu opinbera sem kjararáð telur rétt að hækka í launum,“ þegar rætt er um nýgerðar launahækkanir af völdum kjararáðs.