„Skaðinn er mjög margra. Hann er náttúrulega í fyrsta lagi launafólks sem skaðast vegna þess að það er verið að stela af því launum, þetta er ekkert annað en þjófnaður. Skaðinn er annarra fyrirtækja sem eru í samkeppni við þessi fyrirtæki og þurfa að búa við algjörlega óviðunandi og óásættanlegar samkeppnisaðstæður þar sem þessi brotafyrirtæki eru einfaldlega að undirbjóða á vinnumarkaði á grundvelli brotanna. Síðan er það samfélagið allt, okkar samfélagslegu sjóðir, það er verið að ræna af þeim. Það eru tugir milljarða á hverju einasta ári. Þetta eru gríðarlegar upphæðir,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, um skaðann sem hefur hlotist af því að láta kennitöluflakk fyrirtækja hér á landi næsta óáreitt til margra ára.
Halldór var hluti af starfshópi sem innihélt aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda og lagði á dögunum fram tillögur til að sporna við brotastarfsemi á vinnumarkaði. Halldór er gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hann ræðir þessi mál.
Hann segir fólk ekki hafa gert sér grein fyrir því hversu háar upphæðirnar séu í raun og veru og auk þess hafi stjórnmálamenn og stjórnvöld ekki áttað sig á alvarleika brota af þessu tagi fyrr en nú. „Vonandi verður núna breyting á og það er rétt að geta þess að í raun og veru hafa ekki verið gerðar alvarlegar tilraunir til að takast á við kennitöluflakkið síðan 1986. En nú er s.s. atvinnuvegaráðherra með á þingmálaskrá að leggja fram frumvarp um kennitöluflakkið í þessum mánuði. Við væntum þess að það verði lagt fram frumvarp og að það frumvarp verði í samræmi við það sem hópurinn leggur til,“ segir Halldór.
Mikilvægasta úrlausnarefnið
Auðvelt hefur verið að stunda kennitöluflakk og því er sérstaklega mikilvægt að stemma stigu við því að mati Halldórs. „Það er eiginlega niðurstaða þessa hóps að þetta sé mikilvægasta úrlausnarefnið þegar kemur að þessum undirboðum og brotastarfsemi. Ástæðan er þessi: Þegar það er búið að ná að dæma fyrirtæki fyrir brot, hvort sem það er launaþjófnaður eða þjófnaður gagnvart samfélaginu í tengslum við skattsvik o.s.frv., þá einfaldlega skilja eigendur fyrirtækið eftir, ná sér gjarna í það sem við köllum útfararstjóra til þess að „fronta“ fyrirtækið, fara sjálfir í skjól, setja fyrirtækið á hausinn en halda síðan bara áfram á nýrri kennitölu,“ segir Halldór.
Nánar er rætt við Halldór í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.